Togarinn Júní, frá Hafnarfirði, lenti í mjög svipuðu atviki árið 1980 og Hallgrímur SI-77 sem fórst við Noreg um daginn

Júní fékk 200 lestir
af sjó á milliþilfar
Komust við illan leik inn til Hafnarfjarðar
MIKIL slagsíða kom á togarann
Júní í fyrrinótt og komst skipið
við illan loik inn til Hafnarfjaroar
o){ voru þá um 200 lestir af sjó
komnar á millidokk. Sjór komst
í nokkrar íbúðir skipverja og
munu einhverjir hafa vöknað.
Mestur halli á skipinu varð
2.50°. en skipið rétti sig við eftir
að varðskip og slökkviliðið í
Hafnarfirði höfðu dælt úr skipinu.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk á skrifstofu
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, var
þá ekki vitað, hvað valdið hefði
þessum mikla leka, sem kom að
skipinu. Talsvert veður var er
þetta gerðist og í hvassviðrinu
mun skipið hafa lagzt nokkuð á
hliðina og streymdi þá sjór inn í
vistarverur skipverja. Var öllu
ferskvanti og olíu dælt úr skipinu
til þess að reyna að rétta það við.
Var og skipið látið halla upp í
vindinn.
Um 150 lestir af fiski voru í
skipinu. Atti það að landa á
mánudagsmorgun. Grunur leikur
á að dæla hafi bilað, þótt engin
vissa sé fyrir því. Hins vegar
gerðist það fyrir rúmlega ári, er
skipið var í Hafnarfjarðarhöfn, að
dælubúnaður fór að dæla öfugt og
sjór komst í skipið. Liggur ekkert
fyrir um, hvort slíkt hafi endurtekið
sig nú.
Skipið mun ekki mikið skemmt
eftir þetta óhapp, nema hvað
raftæki á milliþilfari, færibönd og
þvottavélar hafa fengið á sig sjó.
Er verið að kanna skemmdirnar,
sem orðið hafa við það að raftækin
blotnuðu. Vonir standa til að
skipið verði á ný tilbúið til veiða
á miðvikudag, en það mun vera í
fyrsta lagi, að skipið verði sjófært
þá.
Þarna blottnaði einnig stýrisvélin svo handstýra þurfti skipinu og rafmagnstafla brann yfir. Björgunarbátar voru fastir og þurfti áhöfnin að ausa sjó úr skipinu með skúringafötum til að halda við innstreymið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón V Viðarsson
Jón V Viðarsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 277

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband